Fossatún er með síðu á Facebook.

Leitaðu að Fossatún eða smelltu á tengilinn hér að neðan.

 
Hljóðdæmi

Skref 1

Skref 2

Veitingar

Fossatún veitingahús

  

2013

Almennur opnunartími sumar

Opið frá 1 - 21. júní

Sunnudaga- fimmtudaga 10 - 18 

Fostudaga - laugardaga 10-21

Grillið er opið frá 18-20 - 20:30 á laugardögum  og sunnudögum.

 

Opið frá 22. júní til 11. ágúst

Sunnudaga - föstudaga 10 - 21 

Laugadaga 10 - 24

Grillið er opið frá 11:30 - 14 á laugardögum og sunnudögum - og 18-20:30 alla daga.

 

Opið frá 12. ágúst til 1. september 

Sunnudaga- laugardaga 10 - 18 og lengur ef þörf er á.

Pantanir í síma 433 5800 – Netfang: info@fossatun.is

  

Hópmatseðlar

 

Veislur

 

Einstök staðsetning og góður matseðill fyrir einstaklinga og hópa er aðall veitingahússins í Fossatúni.

  

Veitingahúsið stendur við Tröllafossa, fallega  smáfossa í Grímsá með Skarðsheiði og Skessuhorn í grunninn. Á boðstólum er fjölbreyttur matseðill gómsætra rétta fyrir einstaklinga og hópa. Í mótttökunni eru hægt að fá ís og smá nammi,  ásamt tröllabókum , Hljómfagra Ísland DVD og öðrum vörum sem tilheyra staðnum. Þar er þráðlaust netsamband, miðlun upplýsinga, útlán leiktækja og ýmis önnur þjónusta við gesti Fossatúns. Í Kaffi Vínyl er boðið upp á kaffihúsaveitingar; heimabakaðar kökur, samlokur, pizzur, súpur og smárétti. Á kvöldin bætist svo stærri salurinn við og  matseðill þar sem íslenskt eldhús með stíl er í öndvegi ásamt grillmat. 

 

Kaffi Vinyll tekur um 20-30 manns í sæti, þar er vinylplötusafnið og hægt að fá að hlusta á ýmsa gullmola tónlistarsögunnar í einstökum alvöru hljómgæðum. Stærrri salurinn tekur um 60-70 manns í sæti við borð. Gestum gefst kostur á að sjá Hljómfagra Ísland/Acoustic Iceland sýningu sem byggir á íslenskri tónlist og náttúru. Í salnum er tæknibúnaðar s.s. hljóðkerfi, skjávarpi, risaskjár, karaoke, og svið. Salurinn er ákjósanlegur fyrir minni fundi þ.e. 30-40 manns.

 

Í báðum sölum eru góðir og stórir skjáir og heimabíóhljóðkerfi, þar sem hægt er að horfa á beinar útsendingar íþróttaviðburða og annað markvert sjónsvarpsefni. Svo og góða tónlistar DVD diska.

 

Á útipöllum eru borð og sæti fyrir 50-60  manns en pallarnir eru í góðu skjóli fyrir ríkjandi vindátt.


Fossatún ehf Fossatúni Sími: 433 5800 GSM (Steinar):   893 9733  Veffang:   www.fossatun.is
Borgarbyggð 311 Borgarnes kt. 640210–0360 GSM (Ingibjörg) 892 2013  Netfang: upplysingar@fossatun.is