![]() |
||||||||||||||||
|
Efnisyfirlit
Fossatún er með síðu á Facebook. Leitaðu að Fossatún eða smelltu á tengilinn hér að neðan. |
Dagsferðir
DagsferðirDagsferðapakkarnir sem hér eru settir upp þjóna því að vera tillögur að ferðatilhögun sem einstaklingar eða hópar skipuleggja.
Fossatún er tilvalin staður til að heimsækja ef áætlað er að skipuleggja hópferð hvort heldur óvissuferð eða skoðunarferð um Borgarfjörð er að ræða.
Aðstaða til móttöku hópa er óvenjugóð satúni. Fjölbreytt afþreyingaraðstaða, fallegir veitingasalir auk óvenjulegrar staðsetningar gerir gestum kleift að njóta einstakrar náttúrufegurðar frá palli og út um glugga veitingahússins. Hinir fallegu Tröllafossar með Skessuhorn í bakgrunni og Drífa tröllskessa stendur vaktina og tekur brosandi á móti gestum.
Aðstaða í FossatúniMóttaka í veitingahúsi: Gestgjafar taka á móti gestum og segja frá staðnum, staðsetningunni og starfsseminni. Afbragðs matseðill með ferskum heimagerðum réttum. Tveir salir, heildarsætafjöldi fyrir um 60 - 80 manns. Annar salurinn er með sviði. Vinylplötusafn. Skjávarpi, skjátjald, sjónvarp, hljóðkerfi, mikrafónar, karaoke, DVD spilari, CD spilari Tröllaleikir Hópum býðst að fara í tröllaleiki með leiðsögn og stjórnanda. Keppt er í tröllaþrautum s.s. tröllataki, tröllatogi, tröllasparki, tröllaorðum, tröllafeti, tröllaparís o.fl. Ef einhver heldur að þetta séu barnaleikir, þá er það ekki svo. Þrautirnar reyna á fólk bæði líkamlega og andlega og mikil stemning skapast í leikjunum. Auk þess frábær útivera í einstaklega fallegur umhverfi. Tilboð eru gerð fyrir hópa. Kærleiksganga Ný gönguleið opnuð um Hvítasunnuna 2012. Göngustígur um afar fallega náttúru, ríku fuglalífi og óviðjafnalegu útsýni. Á leiðinni eru 11 skilti með einstökum landslagsljósmyndum eftir Friðþjóf Helgason, ásamt texta/ljóði sem allir Íslendingar kunna og geta sungið. Hljómfagra Ísland: Áhrifamikil og skemmtileg stuttmynd, sem sýnd er á stóru tjaldi. Hér fallast íslensk náttúra og íslensk tónlist í faðma. Frítt fyrir gesti. Skemmtikraftur: Hægt er að fá hæfileikaríka trúbadora og bændur úr grenndinni eða bóka eigin skemmtikraft. Tröllafossar: Einstaklega fallegt fossasvæði sem blasir við af pallinum við veitingahúsið. Ægifagurt í björtu og ekki síður í svörtu en við lýsum upp fossana þegar rökkrið sígur á. Tjúllum og tjei: Hægt er að velja tónlistarþema kvöldsins, Rock´n´ Roll, Sixties, Rokk klassík, Eighties, Nineties, Diskó, Kántrí, Íslenskt eða Blandað stuð. Kareokíið getur líka verið opið ef fólk vill tjá sig í söng. Tilboð gerð fyrir hópa. Karaokí keppni Hægt er að fara í liða- eða borðakeppni í kareokí, ákaflega skemmtilegur samkvæmisleikur sem endar með kosningu og krýningu sigurverara eða hafa þetta frjálst og allir eru stjörnur. Tilboð gerð fyrir hópa. Hér er: KARAOKE - LAGALISTI ef fólk vill skoða áður en það mætir. Aðstaða til leikja: Mini-golfvöllur er með 18 fjölbreyttum brautum. Útikeila, kúluspil og skriðkringla. Tilboð gerð fyrir hópa. Vinylplötusafnið: Vertinn sýnir gestum plötur sem hægt er að spila báðum megin og þar er að finna mörg gullkorn. Grillhringur: Stórt kolagrill, steypt gólf, umlukið grasmön (1,80), borð og bekkir fyrir 35-45. Heitir pottar: 500 kr. á mann - lágmarksgjald 10.000 kr. Tveir heitir pottar og skiptiklefa og sturtuaðstaða. Fjallganga: Gengið á Varmalandsmúla, sem er 260 m. hár og einhver fallegasti útsýnisstaður í Borgarfirði.
Möguleikar í grennd við FossatúnLandbúnaðarsafnið: Landbúnaðarverkfæri, vélar, tæki og búvélar (traktorar) ofl. Sveitafittness: Einstaklega fjörmikil og skemmtileg hópakeppni undir leiðsögn fjörkálfsins orðheppna, Guðmundar Hallgrímssonar. Ullarselið: Afbragðs handverk úr héraði. Fjósið á Hvanneyri: Nútímalegt og tæknivætt fjós með fjölda kúa og kálfa. Leiðsögn starfsmanns. Laxasafnið Ferjukoti: Safn helgað veiðitækjum, verkfærum og sögu laxveiða í Borgarfirði. Á leiðinni þangað er farið yfir hina 100 ára gömlu Hvítarbrú, sem var brú brúanna áður fyrr. Geitasetrið Háafelli í Hvítársíðu: Þarna er stór hluti íslenska geitastofnsins í umsjá hennar Jóhönnu. Geitunum finnst fátt skemmtilegra en að fá fólk í heimsókn. Eddu Veröld Kaffihús á afar fallegum stað í Borgarnesi. Umgjörðin er úr goðafræðinni á staðnum er einnig handverksgallerrý. Landnámssetur: Þar er boðið upp á tvær sýningar: Landnámssýningu og Egilssýningu. Hvor um sig tekur hálftíma að fara í gegnum. Einnig er boðið reglulega upp á leiksýningar. Reykholt í Reykholtsdal: Þar er Snorrastofa með aðgengilega sýningu handrita, Snorralaug, Reykholtskirkja með einstökum útskornum gluggum ofl. Deildartunguhver: Vatnsmesti hver Evrópu. 180 lítrar af 100 gráðu heitu vatni vella úr honum á hverri sekúndu. Hraunfossar/Barnafoss: Hraunfossar eru einstakt náttúruundur og Barnafossi tengist áhugaverð saga. Morgunkaffi - Hádegismatur - Síðdegiskaffi - Kvöldmatur Sjá hópmatseðil |
|||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||