Fossatún er með síðu á Facebook.

Leitaðu að Fossatún eða smelltu á tengilinn hér að neðan.

 
Hljóðdæmi

Skref 1

Skref 2

Tilboð

 

 

 Vortilbboð 2013 fyrir hópa

 

Kvöldverður

Panta þarf sama matseðil fyrir hópinn

 

Sumartilboð

Verð: tívrétta 3900 kr. ef kjúklingur eða bleikja er aðalréttur en 4400 kr. ef lambafilé er aðalréttur.

Verð: þrírétta 4700 kr. ef kjúklingur eða bleikja er aðalréttur en 5200 kr. ef lambafílé er aðalréttur.

 

Forréttir

Laxafiðrildi, rúgbrauð með pestó, reyktum laxi, ætiþistli, rauðlauk, capers, piparrótarsósu og steinselju.

EÐA

Rjóma- og sherrylöguð sveppasúpa.

 

Aðalréttur

Kjúklingabringa - tandoori marineruð með balsamiksteiktum rauðlauk, papriku og eplum og minntusósu. Algjört æði!!!!

EÐA

Bjeikja með rjómasoðnu grænmeti og  humartandoorisósu.

Lengi getur gott batnað!!!!

EÐA

Lambafílé - marinerað í hvítlauk og tandoori með piparostasveppasósu og rauðlaukssultu.

Nú fara leikar að æstast - heldur betur!!!!!

 

Meðlæti með aðalréttum. Kartöflubátar hússins og ferskt salat.

 

Eftirréttur

Rabbabaraís með ferskum ávöxtum. - Fyrir +300 kr. er hægt að fá franska súkkulaðiköku, rabbabaraís og ávexti.

 

Kaffi og/eða te og nýbakað brauð með smjöri fylgir.

  

Drykkjaföng

Eðal gott borðvín. Piccini frá Toscana, hópaverð: rautt og hvítt:750 kr. glasið og 700 kr. 0,5l bjór.

Afþreying

Hljómfagra Ísland  - Ókeypis fyri matargesti

Íslensk tónlist og íslenskt landslag. Hrífandi fallegt og skemmtileg sýning sem tilvalið er að njóta þegar eftirréttur og kaffi hefur verið borið fram.

 

Vínyl plötusafnið – Ókeypis fyrir matargesti

Tilvalið með fordrykknum að fá að gramsa í og velja sér gamla og góða vínylplötu úr 3000 plötu safni staðarhaldara og fá hann  svo til að spila á alvöru analóg græjum með þessu hlýja sándi!

 

Sveitadiskó og karaoke  - 10.000 kr.

Tveir tímar af skemmtilegri tónlist og míkrafónum þar sem gestir stíga á stokk og reyna sig við uppáhaldslögin sín í karaoke

 

Trúbador

Við getum útvegað trúbador til að spila undir eða eftir mat.

 

Tröllaleikir

Tröllaleikirnir eru sérstakir leikir og afar skemmtileg keppni sem fólk á öllum aldri getur tekið þátt í. Tilvalið hópefli sem framkallar bros á vör. Ganga og leikir í fallegu umhverfi og tekur u.þ.b. 60 mínútur. Skipt í lið sem fá leikspjöld. Liðsstjóri heldur utan um skorið, sem síðan er gert upp og sigurverari krýndur.

 

Tröllaleikir fyrir matargesti - með leiðsögn

Tilboð m.v. fjölda.

 

Tröllaleikir með leiðsögn og tröllatapas

Einnig hægt að taka þetta sem forrétt og fordrykk fyrir matargesti.

Fjórar gerðir af lystugum snittum úr heimabökuðu rúgbrauði með pestó. 1. með ostabræðingi og beikonbitum 2.með reyktum laxi, ætiþistilsmauki og piparrótarsósu, 3.með tvítaðreyktu hangikjötstæting, melónukúlu og súkkulaðibalsamiki. 4. með lifrakæfu, beikoni og sveppi.- ásamt víngas rautt eða hvítt.

Tilboð m.v. fjölda.

 

Hádegistilboð   

Ómótstæðilega kjúklingasúpan okkar.

Fleytifull af góðmeti og einstöku bragði.

Nýbakað brauð og smjör

Hjónabandssæla með þeyttum rjóma, kaffi og/eða te.

1600 kr.

 

Rómaða lambagúllassúpan okkar. Matarmikil og bragðgóð

Nýbakað brauð og smjör

Hjónabandssæla með þeyttum rjóma, kaffi og/eða te.

1800 kr.


Fossatún ehf Fossatúni Sími: 433 5800 GSM (Steinar):   893 9733  Veffang:   www.fossatun.is
Borgarbyggð 311 Borgarnes kt. 640210–0360 GSM (Ingibjörg) 892 2013  Netfang: upplysingar@fossatun.is